Fotbolti.net
27.03.11 - 07:20
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Adriano til Corinthians (Staðfest)

Adriano til Corinthians (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski framerjinn Adriano hefur ákveðið að semja við Corinthians í heimalandi sínu.
Þessi 29 ára gamli leikmaður gekk til liðs við Roma síðastliðið sumar en hann yfirgaf félagið síðan fyrr í þessum mánuði.

Adriano, sem lék áður með Inter, segist vera ákveðinn í að standa sig hjá Corinthians.

,,Corinthians mun ekki sjá á eftir þessu, ég er baráttumaður. Ég ætla ekki að skapa vandamál heldur skora mörk,\" sagði Adriano.

,,Ég sá enga ástæðu til að vera áfram á Ítalíu, ég meiddist þrisvar, fékk ekki að spila og ég taldi það vera merki um að ég ætti að fara aftur til Brasilíu.\"

,,Ég veit hvað ég get gert. Núna verð ég að bíða, leggja hart að mér og æfa vel til að komast aftur í mitt gamla form.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.