27.03.11 - 14:30
Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdóttir gengur til liðs við LdB Malmö (Staðfest)

Sara Björk í leik með Breiðablik.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Sara Björk Gunnarsdóttir leikmaður Breiðabliks hefur tekið ákvörðun um að semja við sænska kvennafélagið LdB Malmö en þetta staðfesti hún við Fótbolta.net í dag.
Sara Björk sem er tvítug er að flytja til Svíþjóðar og mun skrifa undir þriggja ára samning við sænska félagið.

Hjá LdB Malmö hittir hún fyrir Þóru Björgu Helgadóttur markvörð íslenska landsliðsins en Dóra Stefánsdóttir sem lék með liðinu undanfarin ár er hætt.
Sara Björk sem er uppalin hjá Haukum gekk til liðs við Breiðablik á miðju tímabili 2008 og hefur verið þar síðan og átt fast sæti í liðinu síðan þá.
Hún á einnig fast sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins sem hún hefur leikið með 38 leiki og skoraði 9 mörk.
Rætt verður við Söru Björk í sjónvarpi Fótbolta.net síðar í dag.