Fotbolti.net
27.08.23 - 23:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óli um Stjörnuna: Miklu betra að ráða engan heldur en að ráða bara einhvern

Björn Berg Bryde

Björn Berg Bryde

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Björn Berg Bryde stýrði Stjörnunni þegar liðið mætti norður til Akureyrar á laugardag og mætti KA. BBB steig inn fyrir þjálfarann Jökul Elísabetarson sem var nýbúinn að eignast barn.

Björn Berg er hluti af leikmannahópi Stjörnunnar, miðvörðurinn byrjaði tíu leiki fyrri hluta tímabils en hefur bara spilað einn leik síðan í júní.
Lestu um leikinn: KA 2 - 1 Stjarnan
Jökull var aðstoðarmaður Ágústs Gylfasonar en tók við sem aðalþjálfari þegar Ágúst var látinn fara snemma móts. Jökull hefur ekki verið með mann í hlutverki aðstoðarþjálfara og var því leitað til Björns.

Jökull tók við af Ágústi 10. maí og hefur því verið í þrjá og hálfan mánuði í starfi aðalþjálfara.

Ólafur Jóhannesson, fyrrum þjálfari hjá Stjörnunni, var í Tilþrifunum á Stöð 2 Sport og ræddi um stöðuna hjá Stjörnunni.

Kjartan Atli Kjartansson stýrði þættinum og sagði að þetta væri væntanlega ekki það sem þú vildir gera í úrvalsdeildinni, að leikmaður sé að stýra liðinu.

„Nei nei, enda var þetta neyðartilfelli þannig lagað. Þeir eru ekki með aðstoðarþjálfara og það hlýtur að vera af því þeir eru ekki búnir að finna hann. Það er miklu betra að ráða engan heldur en að ráða bara einhvern. Ég veit að þeir hafa verið að leita, veit um menn sem þeir hafa talað við. Þeir ætla greinilega að vanda sig í því og það er fínt," sagði Óli.

En hvernig týpu myndi Óli ráðleggja Garðbæingum að fá sem aðstoðarþjálfara? Reynslumikinn?

„Það er erfitt fyrir mig að svara því. En ég held hann ætti að fá einhvern mann sem hann þekkir ekki, held að það séu oft bestu þjálfararnir, tveir sem þekkja lítið inn á hvorn annan. Þeir hafa jafnvel sitthvora sýn á hlutina, það er oft sniðugt."

„Ég hef haft þá reglu að ráða ekki vini mína sem aðstoðarþjálfara, ég hef samt brotið þessa reglu. Stundum þurfa þjálfarar að takast á. Sem aðalþjálfari verðuru að leyfa aðstoðarþjálfaranum að hafa skoðanir og jafnvel stundum að framfylgja þeim. Þegar það eru vinir verða menn oft sammála af því þeir eru vinir, þó að þeir séu það ekki en vilja bara ekki segja það."

„Ég held að það sé besta samblandan, að vera ekki með mann sem þú ert ekki að gera greiða með því að fá sem aðstoðarþjálfara,"
sagði Óli.

Viðtalið við Björn Berg eftir leikinn í gær má sjá hér að neðan.
Jökull Elísabetarson

Jökull Elísabetarson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Björn Berg hafði gaman af þjálfarahlutverkinu: Fáum sennilega ekki tækifæri á þessu aftur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.