27.11.10 - 10:10
Magnús Már Einarsson
Anders Lindegaard til Manchester United (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester United hefur keypt markvörðinn Anders Lindegaard frá Álasund í Noregi en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi 26 ára gamli Dani stóðst læknisskoðun fyrr í vikunni og hann hefur nú skrifað undir samning sem gildir til ársins 2014.
Lindegaard verður ekki löglegur með Manchester United fyrr en félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
,,Anders er einn af bestu ungu markvörðunum í boltanum,\" sagði Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United.
,,Að hann fái tíma til að æfa áður en hann fer að spila verður mikilvægur tími fyrir hann, nánast eins og undirbúningstímabil þar sem hann fær að kynnast öðrum leikmönnum.\"

Heimild: BBC