27.11.10 - 11:57
Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Þór Gunnarsson í KR (Staðfest)

Gunnar Þór Gunnarsson er farinn í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Þór Gunnarsson er farinn í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Þór Gunnarsson er genginn til liðs við KR frá Norrköping í Svíþjóð en þetta var staðfest á vef KR rétt í þessu.
Gunnar sem er uppalinn hjá Fram þar sem hann hóf knattspyrnuferil sinn hefur leikið í Svíþjóð undanfarin fimm ár.
Hann er miðvörður sem getur líka leikið sem vinstri bakvörður og er annar leikmaðurinn sem kemur til KR í vetur, áður kom Hannes Þór Halldórsson markvörður úr Fram.
Gunnar lék með Hammarby í Svíþjóð á árunum 2006-2007 en fór svo til Norrköping þar sem hann var 2008-2010.
Hann hefur leikið þrjá leiki með A-landsliði Íslands og 26 leiki með yngri landsliðunum.
Hann semur við KR til eins árs með möguleika á framlengingu.

Heimild: Vefur KR