28.01.11 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Edson Braafheid til Hoffenheim (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þýska stórliðið TSG 1899 Hoffenheim hefur fest kaup á hollenska varnarmanninum Edson Braafheid frá Bayern Munchen.
Braafheid, sem er 27 ára gamall gerði þriggja og hálfs árs samning við Hoffenheim í gær, en hann er þriðji leikmaðurinn sem Hoffenheim hefur fengið í vikunni.
Félagið hefur þegar fest kaup á hollenska vængmanninum Ryan Babel frá Liverpool ásamt því að fá David Alaba miðjumann Bayern Munchen á láni út tímabilið.
Braafheid taldi félagaskiptin mjög mikilvæg fyrir hann þar sem hann fékk ekki að spila nægilega mikið hjá Bayern, en hann lítur á þetta sem möguleika til að halda sæti sínu í hollenska landsliðinu einnig.

Heimild: AP