28.01.11 - 10:40
Hafliði Breiðfjörð
Demba Ba hjá West Ham til 2014 (Staðfest)

Demba Ba í leik með Hoffenheim.

Mynd: Getty Images

Demba Ba í leik með Hoffenheim.

Mynd: Getty Images
Framherjinn Demba Ba frá Senegal hefur samið við West Ham United fram í júní árið 2014.
Leikmaðurinn hafði komið til félagsins fyrr í vikunni á láni út tímabilið frá Hoffenheim í Þýskalandi.
Lánssamningurinn var því fljótur að breytast í sölu því nú hefur þessi 25 ára gamli framherji skrifað undir langtíma samning við félagið.
Ba skoraði sex mörk fyrir Hoffenheim í þýsku Bundesligunni á tímabilinu og í heildina skorað 40 mörk í 103 leikjum.
,,Þetta var löng saga en ég er ánægður því þetta endaði virkilega vel og ég er ánægður með að vera hérna,\" sagði Ba sem hafði fyrr fallið á læknisskoðun hjá Stoke City sem vildi hann einnig.

Heimild: BBC