Fotbolti.net
28.01.11 - 11:26
Magnús Már Einarsson

Obafemi Martins til Birmingham (Staðfest)

Obafemi Martins til Birmingham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham hefur fengið framherjann Obafemi Martins á láni frá Rubin Kazan í Rússlandi.
,,Hann var að eignast barn og bað um að fá að fara til Englands því hann vill vera nær fjölskyldu sinni,\" sagði Kurban Berdyev þjálfari Rubin Kazan.

Martins verður á láni hjá Birmingham út tímabilið en talið er að hann hafi hafnað tilboði frá WBA.

Þessi 26 ára gamli Nígeríumaður þekkir til í enska boltanum eftir að hafa leikið með Newcastle frá 2006-2009.

Í kjölfarið gekk hann í raðir Wolfsburg áður en hann samdi við Rubin Kazan síðastliðið sumar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.