28.01.11 - 14:11
Magnús Már Einarsson
Guðlaugur Victor til Hibernian (Staðfest)

Mynd: Úr einkasafni

Mynd: Úr einkasafni
Skoska félagið Hibernian hefur fengið Guðlaug Victor Pálsson til liðs við sig frá Liverpool. Guðlaugur Victor er búinn að skrifa undir eins og hálfs árs samning við félagið en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í dag.
Hibernian er nú að vinna í því að fá leikheimild fyrir Guðlaug þannig að hann geti spilað með liðinu gegn Dundee á sunnudag.
,,Ég vonast eftir að þetta verði klárt en ef þetta verður ekki staðfest fyrir klukkan 17 í dag þá er ég ekki með leikheimild á sunnudag,\" sagði Guðlaugur við Fótbolta.net í dag.
Þessi 19 ára gamli leikmaður kom til Liverpool frá AGF fyrir rúmum tveimur árum síðan. Hann hefur leikið varaliði Liverpool undanfarna mánuði auk þess sem hann fór til Dagenham & Redbridge á láni fyrir áramót.
Hibernian er sem stendur í ellefta og næstneðsta sæti skosku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum á undan Hamilton. Einungis eitt lið fellur úr skosku deildinni á hverju tímabili og því er Hibernian ekki í fallsæti sem stendur.