28.01.11 - 18:04
Magnús Már Einarsson
Ólafur Þór Berry í HK (Staðfest)

Mynd: Víkurfréttir

Mynd: Víkurfréttir
HK hefur fengið miðjumanninn Ólafur Þór Berry til liðs við sig frá Reyni Sandgerði.
Ólafur hefur æft með HK í vetur og spilað æfingaleiki með liðinu sem og leiki í Fótbolta.net mótinu.
Þessi 24 ára gamli leikmaður lék með ÍBV þegar hann var yngri og síðan Keflavík þar sem hann lék tvo leiki í efstu deild árið 2007.
Síðan þá hefur hann lengst af leikið með Reyni Sandgerði auk þess sem hann stoppaði um tíma hjá Þrótti.
Árið 2009 skoraði Ólafur fimm mörk í sautján leikjum með Reyni í annarri deildinni og í fyrra lék hann sautján leiki með liðinu.