28.01.11 - 17:46
Magnús Már Einarsson
Giampaolo Pazzini til Inter (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Inter hefur gengið frá kaupum á Giampaolo Pazzini framherja Sampdoria.
Inter borgaði tólf milljónir evra fyrir leikmanninn auk þess sem franski kantmaðurinn Jonathan Biabiany fer til Sampdoria í skiptum.
Pazzini, sem er 26 ára, skrifaði undir samning sem gildir til ársins 2015.
Pazzini hefur skorað níu mörk í öllum keppnum með Sampdoria á þessu tímabili.
Hann kom til félagsins frá Fiorentina árið 2009 og skoraði nítján mörk á síðasta tímabili.

Heimild: AP