28.01.11 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Curtis Davies til Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Birmingham hefur keypt varnarmanninn Curtis Davies frá Aston Villa á 3,5 milljónir punda.
Davies kom til Aston Villa frá WBA á sínum tíma og hann hefur því verið duglegur að skipta um félög á svæðinu í kringum Birmingham.
Fyrri hluta tímabilsins var Davies í láni hjá Leicester og það leit út fyrir að hann færi þangað aftur áður en Birmingham kom inn í myndina.
Davies er annar leikmaðurinn sem Birmingham fær í dag því í morgun kom framherjinn Obafemi Martins til félagsins á láni frá Rubin Kazan.

Heimild: Sporting Life