28.01.11 - 20:40
Hafliði Breiðfjörð
Carlos Vela til WBA (Staðfest)

Carlos Vela er farinn til WBA.

Mynd: Getty Images

Carlos Vela er farinn til WBA.

Mynd: Getty Images
Carlos Vela framherji Arsenal hefur verið lánaður til WBA út tímabilið.
Vela sem er 21 árs gamall mexíkóskur framherji hefur aðeins tekið þátt í 8 leikjum með Arsenal á tímabilinu, öllum eftir að hafa komið inná sem varamaður.
Hann hefur þó skorað þrjú mörk í þessum átta leikjum en hefur verið neðstur í goggunaröðinni af fjórum framherjum liðsins.
Vela kom til Arsenal 1. janúar 2008 en hóf ekki að spila fyrr en tímabilið á eftir þegar búið var að greiða úr atvinnuleyfi fyrir hann.
Vela var mikið meiddur á síðustu leiktíð og hafði vonast eftir að spila meira á þesari. Arsenal tilkynnti svo í kvöld að hann hafi verið lánaður til WBA.

Heimild: AP