28.02.11 - 13:21
Magnús Már Einarsson
Pétur Heiðar í Þór (Staðfest) - Í viðræðum við Janez Vrenko

Janez Vrenko.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Janez Vrenko.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Þórsarar hafa fengið Pétur Heiðar Kristjánsson til liðs við sig frá norska félaginu Stryn.
Pétur Heiðar er uppalinn Þórsari en hann hefur undanfarin tvö ár leikið með Stryn.

Þórsarar eiga einnig í viðræðum við Janez Vreno leikmann KA en Páll Viðar Gíslason þjálfari liðsins staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag.
Vrenko er varnarmaður frá Slóveníu en þessi 28 ára gamli leikmaður hefur verið fastamaður hjá KA síðan árið 2006. Árið 2009 æfði hann með KR en fékk ekki samning hjá félaginu.
Á dögunum fengu Þórsarar framherjann David Disztl frá KA og Vrenko gæti núna farið sömu leið.
Þá er Páll Viðar á leið til Bandaríkjanna á laugardag þar sem hann verður í eina viku að skoða leikmenn.
,,Það er búið að benda mér á tvo stráka sem ég hefði gott af því að líta á. Þetta eru strákar sem voru að útskrifast í háskólabolta og hafa áhuga á að prófa að spila í Evrópu. Ég reikna ekkert endilega með að ná í leikmann þarna en það verður gaman að skoða þetta,\" sagði Páll Viðar við Fótbolta.net.
Í fyrra fengu Þórsarar bakvörðinn Guiseppe \"Joe\" Funicello frá Bandaríkjunum en hann fór síðan til félags í Finnlandi í ágúst síðastliðnum.
Þórsarar munu leika í Pepsi-deildinni í sumar en þeir voru í stuði í gær þegar þeir unnu Selfoss 8-0 í Lengjubikarnum.