28.04.11 - 19:07
Magnús Már Einarsson
Orri og Víkingur í Dalvík/Reyni á láni (Staðfest)

Mynd: Dalvík/Reynir

Mynd: Dalvík/Reynir
Dalvík/Reynir hefur fengið Orra Gústasson og Víking Hauksson lánaða frá KA fyrir átökin í 2. deildinni í sumar. Báðir þessir leikmenn hafa æft með Dalvík/Reyni að undanförnu.
Orri Gústafsson er 21 árs gamall sóknarmaður. Í fyrra tók Orri þátt í 17 leikjum í 1. deildinni með KA. Alls hefur Orri tekið þátt í 38 leikjum með KA í 1. deildinni.
Víkingur Hauksson er einnig 21 árs en hann er örfættur varnarmaður. Í fyrra lék Víkingur með Draupni í 3. deildinni og var valinn leikmaður tímabilsins. Hann samdi hinsvegar við KA í vetur en hann er uppalinn KA maður.
Orri og Víkingur verða væntanlega báðir löglegir með Dalvík/Reyni á laugardaginn þegar liðið spilar gegn Magna í undankeppni Valitors-Bikarsins.