Fotbolti.net
29.01.11 - 12:57
Hafliði Breiðfjörð

Garðar Jóhannsson í Stjörnuna (Staðfest)

Garðar er kominn í Stjörnuna.

Garðar er kominn í Stjörnuna.

Canon

Mynd: Matthias Freyr Matthiasson

Garðar Jóhannesson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt, Stjörnuna, að nýju en þetta var staðfest á fréttamannafundi í Garðabænum rétt í þessu.
Garðar skrifaði þá undir tveggja ára samning við félagið en hann keur til félagsins frá Strømsgodset í Noregi.

Garðar lék með Stjörnunni gegn ÍA í Fótbolta.net mótinu í morgun en hann hafði síðast leikið með liðinu þrjá leiki á síðustu leiktíð á meðan hann var milli félaga.

Hann er þrítugur framherji sem hóf feril sinn hjá Stjörnunni en gekk til liðs við KR árið 2003. Hann fékk fá tækifæri hjá KR og var einnig nokkuð meiddur.

Árið 2006 gekk hann til liðs við Val á miðju tímabili og hafði skorað 5 mörk í 7 leikjum í deild og bikar þegar hann var seldur og fór út í atvinnumennsku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.