29.01.11 - 15:09
Magnús Már Einarsson
Sulley Muntari til Sunderland (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sunderland hefur fengið miðjumanninn Sulley Muntari á láni frá Inter út þetta tímabil.
Þessi 26 ára gamli Ghanamaður þekkir til í enska boltanum því hann lék með Portsmouth áður en Inter keypti hann á 16 milljónir evra í júlí 2008.

Hjá Sunderland hittir hann fyrir landa sína John Mensah og Asamoah Gyan.
,,Þegar að tækifæri býðst að fá leikmann með hans hæfileika, jafnvel í stuttan tíma, þá verður þú að grípa það og ég er ánægður með að við höfum náð því,\" sagði Steve Bruce stjóri Sunderland.

Heimild: Sporting Life