Fotbolti.net
29.08.23 - 14:09
Innkastið
Í samstarfi við styrktaraðila

Af hverju leitaði Stjarnan ekki í reynslumikinn þjálfara til að leysa Jökul af?

Björn Berg Bryde.

Björn Berg Bryde.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Björn Berg Bryde leikmaður Stjörnunnar stýrði liðinu í 2-1 tapi gegn KA í Bestu deildinni um liðna helgi, í fjarveru Jökuls Elísabetarsonar sem var að eignast barn.

Björn Berg er á meiðslalistanum og stýrði liðinu en Jökull er ekki með neinn aðstoðarþjálfara.
„Hann er með markmannsþjálfara, er hann ekki strax betur til þess fallinn að stýra liðinu?" velti Sæbjörn Steinke fyrir sér í Innkastinu.

Talað hefur verið um menn eins og Þorvald Örlygsson, Kristján Guðmundsson og Veigar Pál Gunnarsson sem starfa fyrir Stjörnuna og hefðu getað tekið leikinn.

„Stjarnan var ekki í sama takti í þessum leik og liðið hafði verið síðustu umferðir, sama hverju sé um að kenna. En mér finnst það stórfurðulegt að ekki sé leitað til reynslumikils þjálfara innan Stjörnunnar til að stýra þessum leik," segir Elvar Geir.

Í þættinum er því velt upp hvort Jökull hafi mögulega ekki viljað fá neinn utan núverandi hóps og starfsliðs til að taka leikinn.

„Ég held að hann hafi ekki viljað einhvern reynslumikinn þjálfara. Það er mín ágiskun að hann hafi verið hræddur um að sá sem kæmi inn myndi gera þetta á sínum forsendum. Hann hafi ekki viljað sjá Stjörnuna fara í öðruvísi fótbolta," segir Tómas.

„Þetta er smá sjoppulegt þegar þú ert með þennan mannauð innan félagsins."

<b>Innkastið</b> - Listrænn gjörningur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.