29.11.10 - 13:17
Magnús Már Einarsson
Aron Már Smárason til Hauka (Staðfest)

Mynd: Haukar

Mynd: Haukar
Haukar hafa fengið framherjann Aron Má Smárason til liðs við sig frá Breiðablik. Aron hefur æft með Haukum að undanförnu en hann skoraði meðal annars í sigri liðsins gegn Víkingi í æfingaleik á dögunum.
Aron Már sem er 26 ára gamall spilaði með Fjarðabyggð í 1. deildinni í sumar en þar var hann á láni frá Íslandsmeisturum Breiðabliks.
Hann spilaði 20 leiki með Fjarðabyggð sem féll úr 1. deildinni og skoraði í þeim 12 mörk.
Sumarið 2009 var hann hjá Breiðablik þar sem hann spilaði fimm leiki en hann hóf feril sinn hjá uppeldisfélagi sínu, Njarðvík, árið 2002. Hjá Njarðvík spilaði hann 88 leiki og skoraði 25 mörk.
,,Við vonum að sjálfsögðu að Aron eigi eftir að falla vel inn í hóp okkar Haukamanna sem hefur eitthvað minnkað frá síðasta tímabili en leikmennirnir sem héldu trausti við Hauka og munu spila áfram með félaginu eru staðráðnir í að koma sér strax á staðinn þar sem við eigum heima, þ.e.a.s. í efstu deild að ári,\" segir á heimasíðu Hauka.

Heimild: Heimasíða Hauka