Fotbolti.net
29.11.10 - 13:40
Hafliði Breiðfjörð

Andrea Ýr Gústavsdóttir í Breiðablik (Staðfest)

Andrea Ýr í leik með Val.

Andrea Ýr í leik með Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Kvennaboltinn
Kvennalið Breiðabliks hefur fengið góðan liðsstyrk því Andrea Ýr Gústavsdóttir er gengin í raðir félagsins frá Val. Andrea Ýr skrifaði undir tveggja ára samning við Breiðablik sem hafði betur en nokkur önnur félög sem sýndu henni áhuga.
Andrea Ýr er 19 ára gömul og spilar ýmist á vinstri kanti eða sem vinstri bakvörður.

Hún hefur leikið mikið með yngri landsliðum Íslands og á að baki 19 leiki með U19 ára landsliðinu og 10 í U17 ára landsliðinu þar sem hún hefur skorað þrjú mörk.

Andrea Ýr er uppalin í Val en lék eitt ár í Haukum í 4. flokki og kom svo aftur í Val árið 2005 þar sem hún hefur verið síðan utan nokkurra mánuða er hún var lánuð í Aftureldingu árið 2008.

Hún hefur leikið 59 leiki í deild og bikar með Val og Aftureldingu og spilaði síðast 8 leiki í deild og bikar með liðinu í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.