Fotbolti.net
29.11.10 - 15:10
Hafliði Breiðfjörð

Trausti Sigurbjörnsson í Þrótt (Staðfest)

Trausti í markinu hjá ÍA í leik gegn FH.

Trausti í markinu hjá ÍA í leik gegn FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Markvörðurinn Trausti Sigurbjörnsson er genginn til liðs við Þrótt og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Frá þessu var greint á vef Þróttar í dag en Trausti var varamarkvörður hjá Leikni á síðustu leiktíð.

Truasti er uppalinn á Akranesi þar sem hann hóf meistaraflokksferil sinn með ÍA sumarið 2007 er hann lék einn leik í deild og annan í bikar.

Hann lék svo helming leikja ÍA bæði 2008 og 2009 en valdi svo að skipta yfir í Leikni í sumar þar sem hann lék einn leik í bikarnum.


Trausti á að baki 9 leiki með U17 ára landsliðinu og 6 leiki með U19 ára landsliðinu.

Hann hefur leikið 25 leiki í deild og bikar með ÍA auk leiksins í sumar með KR.

Heimild: Vefur Þróttar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.