Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 30. mars 2023 16:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnar rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Íslands (Staðfest)
Icelandair
Arnar Þór Viðarsson.
Arnar Þór Viðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar stýrði landsliðinu frá desember 2020.
Arnar stýrði landsliðinu frá desember 2020.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Viðarsson hefur verið rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Íslands. KSí var að tilkynna um þetta.

„Stjórn KSÍ hefur tekið ákvörðun um að leysa Arnar Þór Viðarsson frá störfum sem þjálfara A landsliðs karla og mun nú hefja leit að eftirmanni hans. Stjórnin metur þetta nauðsynlegt skref með hagsmuni liðsins í huga og möguleikann á að ná þeim árangri sem þarf til að koma liðinu aftur í fremstu röð," segir í tilkynningu KSÍ.

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, segir:

„Þetta er auðvitað erfið ákvörðun en við teljum hana nauðsynlega og rétta með hagsmuni liðsins að leiðarljósi. Arnar hefur gert margt gott hérna hjá KSÍ og á hrós skilið fyrir sitt starf sem var oft unnið í krefjandi aðstæðum. Nú förum við beint í að finna eftirmann hans til þess að hefja undirbúning fyrir næstu leiki liðsins sem fram fara í sumar."

Arnar tók við þjálfun liðsins í desember 2020. Hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir störf sín og í könnun á Fótbolta.net í síðustu sögðust 89 prósent lesenda vilja losna við hann strax.

Ísland hóf nýverið leik í undankeppni EM 2024 og er með þrjú stig eftir leiki; liðið tapaði 3-0 gegn Bosníu en vann svo Liechtenstein í öðrum leik sínum 7-0.

Árangur Arnars með Ísland:
Sigrar - 6
Jafntefli - 13
Töp - 12
19,35 prósent sigurhlutfall.

Sigrarnir sex voru gegn Liechtenstein (3), Færeyjum, San Marínó og Venesúela.
Athugasemdir
banner
banner
banner