Fotbolti.net
30.04.11 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Björn Orri og Einar Már í Hamar (Staðfest)

Björn Orri Hermannsson.

Björn Orri Hermannsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Hamar úr annarri deild hefur fengið Björn Orra Hermannsson og Einar Már Þórisson til liðs við sig.

Björn Orri er uppalinn Fylkismaður en hann lék einnig um tíma með unglingaliði Ipswich.

Björn Orri hefur undanfarin tvö ár verið á mála hjá Fram en meiðsli settu strik í reikninginn þar og hann lék einungis tvo leiki með liðinu í Pepsi-deildinni.

Þessi 21 árs gamli varnarmaður hefur æft með Hamar að undanförnu og nú hefur hann fengið félagaskipti.
Hamarsmenn hafa einnig fengið sóknarmanninn Einar Má Þórisson á láni frá KR.

Einar Már, sem gekk upp úr öðrum flokki síðastliðið haust, hefur líkt og Björn Orri æft með Hamar undanfarnar vikur en hann æfði einnig um tíma með Haukum í vetur.

Þá er varnarmaðurinn Hákon Andri Víkingsson kominn aftur til Hamars frá Þrótti en hann hefur einnig leikið í Hveragerði undanarin tvö tímabil.

Allir þessir leikmenn eru komnir með leikheimild og geta því leikið með Hamar gegn Carl í VISA-bikarnum á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.