30.04.11 - 09:16
Magnús Már Einarsson
Sveinn Óli Birgisson í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Mynd: Dalvík/Reynir

Mynd: Dalvík/Reynir
Dalvík/Reynir hefur styrkt leikmannahóp sinn enn frekar fyrir átökin í 2. deildinni en liðið hefur fengið Svein Óla Birgisson á láni frá Þór Akureyri.
Sveinn Óli er er fæddur árið 1990, en hann er varnarmaður. Í fyrra lék hann sjö leiki þegar Þór komst upp úr 1. deildinni.
Sveinn Óli hefur fengið leikheimild með Dalvík/Reyni og mun því vera löglegur þegar liðið tekur á móti Magna í undankeppni Valitors-Bikarsins í dag.
Þá hefur Stefán Daði Bjarnason einnig haft félagaskipti yfir í Dalvík/Reyni frá Þór.
Stefán Daði er uppalinn Dalvíkingur en hefur spilað undanfarin ár með Þór. Stefán Daði er fæddur árið 1993 en hann hefur æft með Dalvík/Reyni í vetur.
Í fyrradag fékk Dalvík/Reynir einnig Orra Gústafsson og Víking Hauksson á láni frá KA.