Fotbolti.net
30.10.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Nigel Pearson rekinn frá Bristol City (Staðfest)

Nigel Pearson rekinn frá Bristol City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nigel Pearson er farinn frá Bristol City eftir tvö ár í starfi en hann var látinn fjúka eftir 2-0 tapið gegn erkifjendum þeirra í Cardiff City um helgina.
Pearson tók við Bristol City í febrúar árið 2021 og var þá ráðinn út tímabilið.

Stjórnarmenn Bristol voru ánægðir með hans störf og gerðu við hann nýjan samning aðeins tveimur mánuðum síðar, en sá samningur var til þriggja ára.

Væntingar Bristol voru miklar fyrir þetta tímabil en Pearson hefur ekki tekist að koma liðinu á þá siglingu sem vonast var eftir og var hann látinn fara eftir tvö töp í röð.

Curtis Fleming, sem var aðstoðarmaður Pearson, stýrir liðinu til bráðabirgða.

Bristol City er í 15. sæti með aðeins 18 stig eftir fjórtán leiki í ensku B-deildinni.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.