Fotbolti.net
30.11.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Nicky Butt til South China (Staðfest)

Nicky Butt.

Nicky Butt.

Canon

Mynd: Getty Images

Nicky Butt fyrrverandi leikmaður Manchester United, Birmingham og Newcastle tók fram skóna í gær og gekk til liðs við South China í Hong Kong.
Butt hafði lagt skóna á hilluna eftir síðustu leiktíð er hann lék með Newcastle United en hann hafði áður verið leikmaður Manchester United tólf ár.

Hann er í dag 35 ára gamall og ákvað óvænt í gær að taka skóna fram að nýju til að spila með liðinu.

,,Ég ætla ekkert að ljúga,\" sagði hann. ,,Ég hef ekki verið að stúdera í kínversku deildinni eða Hong Kong í mörg ár. Þetta er allt nýtt fyrir mér.\"

,,En ég hef komið þangað tvisvar eða þrisvar og það er ótrúlegt hversu ástríðufullir stuðningsmennirnir í Asíu eru.\"

,,Fótboltinn er ekki í sömu gæðum og úrvalsdeildinn en stuðningsmennirnir taka þetta enn mjögn alvarlega.\"

Heimild: Soccerway

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.