30.11.10 - 13:14
Hafliði Breiðfjörð
Tómas Emil í Gróttu að nýju (Staðfest)

Stjórnmenn Knattspyrnudeildar Gróttu , Birgir Hákonarsson og Hilmar S. Sigurðsson ásamt Tómasi við undirritun samningsins.

Mynd: Grótta

Stjórnmenn Knattspyrnudeildar Gróttu , Birgir Hákonarsson og Hilmar S. Sigurðsson ásamt Tómasi við undirritun samningsins.

Mynd: Grótta
Tómas Emil Guðmundsson Hansen hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Gróttu. Tómas Emil hefur áður leikið fyrir Gróttu en hann hefur spilað 30 leiki og skorað 2 mörk fyrir félagið.
Tómas er fæddur og uppalinn á Ísafirði þar sem hann spilaði í yngri flokkum með BÍ. Hann spilaði sína fyrstu leiki með meistaraflokki 17 ára og hefur spilað samtals 52 leiki með BÍ/Bolungarvík þar sem hann lék á seinasta leiktímabili.
Tómas getur spilað allar varnarstöður og á miðjunni.
,,Stjórn knattspyrnudeildar lýsir yfir ánægju með að fá Tómas aftur í Gróttu og mikilvægur liður í að styrkja liðið fyrir næstu leiktíð í 1. deildinni,\" sagði í tilkynningu félagsins.