Fotbolti.net
30.12.10 - 18:21
Magnús Már Einarsson

Milos Glogovac í KF (Staðfest)

Milos Glogovac.

Milos Glogovac.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Varnarmennirnir Milos Glogovac og Kristján Vilhjálmsson skrifuðu í kvöld undir eins árs samning við KF.
KF eða Knattspyrnufélag Fjallabyggðar hét áður KS/Leiftur en liðið mun leika í annarri deildinni næsta sumar.

Milos Glogovac er þrítugur Serbi en hann yfirgaf herbúðir Víkings R. á dögunum.

Milos kom til Víkings fyrir tímabilið 2005 en hann lék 108 leiki fyrir félagið og skorað í þeim eitt mark.

,,Ég þekki Lárus Orra (Sigurðsson, þjálfara KF) og liðið vill fara upp í fyrstu deild,\" sagði Milos við Fótbolta.net.

Kristján kemur einnig til KF frá Víkingi R. en hann hefur verið í láni hjá KS/Leiftri undanfarin tvö tímabil og þekkir því vel til í Fjallabyggð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.