30.12.10 - 19:15
Hafliði Breiðfjörð
Freddie Ljungberg til Celtic (Staðfest)

Freddie Ljungberg er kominn til Celtic í Skotlandi.

Mynd: Getty Images

Skoska félagið Glasgow Celtic tilkynnti í kvöld að Svíinn Freddie Ljungberg sé genginn til liðs við félagið eftir að hafa gengist undir læknisskoðun.
Ljungberg sem er 33 ára gamall hefur verið félagslaus síðan hann hætti hjá Chicago Fire í Bandaríkjunum í lok tímabilsins í haust.
Celtic tilkynnti svo komu hans í kvöld og sagði mögulegt að Ljungberg verði með liðinu í leiknum gegn erkiféndunum í Rangers á sunnudaginn. Félagið gaf ekki frekari upplýsingar um samninginn.
Ljungberg var í níu ár hjá Arsenal en fór þaðan til West Ham árið 2007. Hann hætti þar ári síðar og tók sér stutt frí áður en hann fór til Seattle Sounders í Bandaríkjunum þaðan sem hann fór til Chicago.

Heimild: AP