31.01.11 - 09:57
Magnús Már Einarsson
Paul Konchesky til Nottingham Forest (Staðfest)

Mynd:

Mynd:
Nottingham Forest hefur fengið Paul Konchesky vinstri bakvörð Liverpool á láni út tímabilið.
Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, staðfesti þetta á fréttamannafundi rétt í þessu en hann hafði aftur á móti engar nýjar fréttir af Fernando Torres.
Konchesky hefur ekki náð sér á strik hjá Liverpool síðan hann kom til félagsins frá Fulham síðastliðið sumar.
Konchesky var í liðinu hjá Roy Hodgson en eftir að Dalglish tók við Liverpool fyrr í mánuðinum hefur hann ekki fengið nein tækifæri.
Þessi 29 ára gamli leikmaður mun núna reyna að hjálpa Nottingham Forest að komast upp í ensku úrvalsdeildina en liðið er sem stendur í fimmta sæti í Championship deildinni.

Heimild: Heimasíða Liverpool