31.01.11 - 11:46
Einar Sigurðsson
Daniel Ayala til Derby á láni (Staðfest)

Daniel Ayala í leik með Liverpool.

Mynd: Getty Images

Daniel Ayala í leik með Liverpool.

Mynd: Getty Images
Derby County hefur fengið Daniel Ayala, varnarmann Liverpool, til liðs við sig til loka tímabilsins.
Þjálfari liðsins, Nigel Clough, lýsti yfir áhuga á Spánverjanum í síðustu viku og hefur nú náð að krækja í kappann.
Ayala hefur eytt síðustu þremur mánuðum á láni hjá Hull og skoraði meðal annars í 2-0 sigri á Derby.
Óvíst er hvort Ayala nái næsta leik Derby þegar þeir mæta Paul Jewell og lærisveinum hans í Ipswich Town en hann hefur átt við meiðsli að stríða.