31.01.11 - 14:05
Hafliði Breiðfjörð
AC Milan fær Legrottaglie frá Juventus (Staðfest)

Legrottaglie í leik gegn AC Milan.

Mynd: Getty Images

Legrottaglie í leik gegn AC Milan.

Mynd: Getty Images
AC Milan hefur fengið varnarmanninn Nicola Legrottaglie frá Juventus en félagið staðfesti þetta nú í dag.
Legrottaglie sem er 34 ára gamall gekk frá félagaskiptunum eftir að Juventus fékk Andrea Brazagli frá Wolfsburg í síðustu viku.
,,Milan tilkynnir samning við Nicola Legrottaglie sem kemur endanlega til félagsins frá Juventus,\" sagði í tilkynningu AC Milan.
,,Legrottaglie skrifaði undir samning fram til 30. júní 2011.\"
Milan hefur verið að leita að varnarmanni til að stíga inn vegna meiðsla Alessandro Nesta.
Legrottaglie er fimmtu kaup félagsins í glugganum, áður höfðu þeir fengið Urby Emanuelson, Didac Vila, Mark Van Bommel og Antonio Cassano.
Hann gæti leikið sinn fyrsta leik gegn Lazio á morgun.

Heimild: Rivals DM