Fotbolti.net
31.01.11 - 15:32
Magnús Már Einarsson

Andy Reid til Blackpool (Staðfest)

Andy Reid til Blackpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackpool hefur keypt miðjumanninn Andy Reid frá Sunderland en talið er að kaupverðið hljóði upp á eina milljón punda.
Þessi 28 ára gamli Íri er búinn að standast læknisskoðun og ganga frá samningum.

Reid hefur ekki verið inni í myndinni hjá Steve Bruce í vetur en hann fór til Sheffield United á láni fyrir áramót.

Orðrómur er um að koma hans þýði að Charlie Adam sé á förum til Liverpool og veðbankar hafa meðal annars lokað á veðmál um að miðjumaðurinn gangi til liðs við þá rauðklæddu í dag.

Ian Holloway, stjóri Blackpool, er að styrkja hópinn fyrir síðari hluta tímabilsins en James Beattie mun líklega koma einnig til félagsins síðar í dag.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.