Fotbolti.net
31.01.11 - 15:48
Magnús Már Einarsson

Ian Ashbee til Preston (Staðfest)

Ian Ashbee til Preston (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Preston North End hefur keypt miðjumanninn Ian Ashbee frá Hull City.

Ashbee, sem er 34 ára, bað um sölu frá Hull um helgina og hann hefur núna skrifað undir eins og hálfs árs samning við Preston.

Phil Brown, fyrrum stjóri Hull, tók við Preston á dögunum og hann þekkir vel til Ashbee sem var fyrirliði hjá Hull þegar hann stjórnaði liðinu.
Ashbee lék á sínum tíma á Íslandi en hann var í láni hjá ÍR sumarið 1996.

Hann mun núna reyna að hjálpa Preston að forðast fall en liðið er í neðsta sæti í Championship deildinni, sex stigum frá öruggu sæti.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.