31.01.11 - 17:39
Magnús Már Einarsson
Tuncay til Wolfsburg (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þýska félagið Wolfsburg hefur keypt framherjann Tuncay frá Stoke City.
Þessi 29 ára gamli leikmaður stóðst læknisskoðun um helgina og hann hefur núna skrifað undir þriggja og hálfs árs samning.
Stee McClaren er þjálfari Wolfsburg en hann hefur verið í leit að framherja síðan að Edin Dzeko fór til Manchester City fyrr í mánuðinum.
Tuncay lék með Middlesbrough frá 2007-2009 áður en hann gekk í raðir Stoke.
Tuncay var ekki inni í myndinni hjá Tony Pulis stjóra Stoke og hann ákvað því að stökkva á tækifærið og fara til Þýskalands.

Heimild: Sky