Fotbolti.net
31.01.11 - 17:57
Fótbolti.net

Freddy Adu til Rizespor (Staðfest)

Freddy Adu til Rizespor (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Freddy Adu hefur þvælst milli félaga síðustu árin og var í dag lánaður frá Benfica í Portúgal til Rizespor í Tyrklandi út tímabilið. Adu er 21. árs í dag en fyrir sjö árum síðan var hann talinn efnilegasti knattspyrnumaður heimsins, stimplaður sem algjört undrabarn.
Það hefði ekki komið mörgum á óvart fyrir sjö árum ef sagt hefði verið við þá að Adu yrði seldur fyrir háar fjárhæðir í janúar 2011. En allt annað hefur komið á daginn. Rizespor leikur í B-deildinni í Tyrklandi.

Adu vakti mikla athygli fjórtán ára gamall fyrir hraða sinn og tækni og mikinn líkamsstyrk miðað við aldur. Hann gerði risasamning við Nike og varð yngsti markaskorari í sögu bandarísku MLS-deildarinnar þar sem hann skoraði fyrir DC United. Honum var spáð bjartri framtíð og menn bjuggust við að þarna væri einn besti knattspyrnumaður sögunnar að verða til.

Síðan þá hefur allt legið niður á við og Adu orðið að flökkukind sem hefur hvergi náð að festa rótum. Hann hefur meðal annars spilað með Real Salt Lake, Monaco, Belenenses og Aris en hvergi staðið undir væntingum. Hann hefur verið samningsbundinn Benfica síðan 2007 en aðeins spilað ellefu leiki og skorað í þeim tvö mörk.

Í fyrra var hann lánaður til gríska liðsins Aris en skoraði aðeins eitt mark í níu leikjum. Það er einlæg von okkar hér á Fótbolti.net að honum gangi betur í tyrknesku 2. deildinni og slái í gegn hjá Rizespor.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.