31.01.11 - 20:09
Einar Sigurðsson
Nagatomo til Inter (Staðfest)

Mynd: Einar Sigurðsson

Mynd: Einar Sigurðsson
Inter Milan hafa staðfest komu japanska vinstri bakvarðarins Yuto Nagatomo á láni og mun hann dvelja hjá þessu ítalska stórliði til loka tímabilsins.
Nagatomo, sem er 24 ára gamall, kemur til Inter frá Cesena en hann kom þangað frá FC Tokyo í heimalandi sínu og má segja að hann komi í skiptun fyrir hinn 19 ára gamla Davide Santon sem fer einnig á láni til Cesena.
Japaninn vann Asíubikarinn fyrir stuttu í Katar með landsliði sínu og hreif marga á Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku síðastliðið sumar.
Inter hafa einnig einnig fengið til liðs við sig Luc Castaignos, hátt metinn framherja frá Feyenoord til loka tímabilsins.