Fotbolti.net
31.01.11 - 20:13
Hafliði Breiðfjörð

Stephen Ireland til Newcastle United (Staðfest)

Stephen Ireland  er orðinn leikmaður Newcastle United.

Stephen Ireland er orðinn leikmaður Newcastle United.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United hefur staðfest að Stephen Ireland sé genginn til liðs við félagið á láni frá Aston Villa út tímabilið.
Hann hafði komið til Aston Villa frá Manchester City síðasta sumar en náði aldrei að sanna sig hjá Aston Villa eftir að Gerard Houllier tók við liðinu.

Hann hafði verið leikmaður ársins hjá Manchester City fyrir tveimur árum síðan en glímdi líka mikið við meiðsli hjá Aston Villa.

,,Stephen hefur sýnt undanfarnar leiktíðir að hann er topp leikmaður svo við erum vikrilega ánægðir með að hafa hann út tímabilið,\" sagði Alan Pardew stjóri Newcastle.

,,Hann er skapandi miðjumaður sem getur skapað færi fyrir aðra og skorað mörk sjálfur og við teljum að hann geti skipt sköpum fyrir okkur á seinni hluta tímabilsins.\"

,,Ég held að Stephen telji geti gert meira en hann sýndi hjá Villa til þessa svo hann þarf að sanna sig og ég tel að hann geti nýtt sér það.\"

Heimild: Vefur Newcastle

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.