Fotbolti.net
31.01.11 - 20:24
Magnús Már Einarsson

James Beattie í Blackpool (Staðfest)

James Beattie í Blackpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackpool hefur fengið James Beattie á láni frá Rangers út þetta tímabil.
Beattie stóðst læknisskoðun í dag og nú er búið að ganga frá samningum.

Beattie kom til Rangers frá Stoke fyrir ári síðan en hann hefur ekki náð að finna sig í Skotlandi.

Beattie hefur einnig leikið með Southampton, Everton og Sheffield United á ferli sínum.

Blackpool fékk fyrr í dag Andy Reid frá Sunderland og þá er talið að félagið sé einnig að krækja í Sergei Kornilenko framherja Zenit St Pétursborg.

Charlie Adam gæti aftur á móti farið til Liverpool áður en félagaskiptagluggin opnar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.