31.01.11 - 20:46
Magnús Már Einarsson
Daniel Sturridge til Bolton á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bolton hefur fengið framherjann Daniel Sturridge á láni frá Chelsea út þetta tímabil.
Samkeppnin í framlínunni hjá Chelsea er að aukast með komu Fernando Torres og því fékk Sturridge að fara á láni.
Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur verið í herbúðum Chelsea síðan sumarið 2009 en hann kom til félagsins frá Manchester City.
Hjá Bolton mun Sturridge berjast við Kevin Davies, Johan Elmander og Ivan Klasnic um stöðu í byrjunarliðinu.
Orðrómur var um það að Elmander væri á leið til Newcastle en nýjustu fréttir segja að hann verði áfram hjá Bolton fram á sumar þegar samningur hans rennur út.

Heimild: Sky