Fotbolti.net
31.01.11 - 20:44
Hafliði Breiðfjörð

Luis Suarez til Liverpool - fær sjöuna (Staðfest)

Luis Suarez eftir undirskriftina.

Luis Suarez eftir undirskriftina.

Canon

Mynd: Vefur Liverpool

Liverpool staðfesti rétt í þessu að Úrúgvæinn Luiz Suarez er genginn til liðs við félagið frá Ajax.
Suarez skrifaði undir fimm og hálfs árs samning við Liverpool og er því samningsbundinn fram á sumarið 2016.

Liverpool staðfesti að kaupverðið á leikmanninum sé 26,5 milljónir evra (22,7 milljónir punda) en Ajax samþykkti það á föstudaginn.

Búið var að komast að samkomulagi við leikmanninn og samningurinn valt á því að hann kæmist í gegnum læknisskoðun sem nú er búið.

Hann mun klæðast keppnistreyju númer 7 hjá Liverpool.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.