31.01.11 - 21:41
Magnús Már Einarsson
Apostolos Vellios til Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Everton hefur fengið framherjann Apostolos Vellios frá Iraklis Thessaloniki í Grikklandi.
Þessi 19 ára gamli leikmaður mun vera í varaliði Everton til að byrja með hann gerði samning við félagið til ársins 2014.
Vellios kom upp í gegnum unglingastarf Iraklis en hann hefur skorað sjö mörk í 14 leikjum með U19 ára landsliði Grikkja.
Þá hefur Everton lánað Joao Silva til Uniao Desportiva de Leiria í Portúgal auk þess sem framherjinn Kieran Agard verður á láni hjá Kilmarnock í Skotlandi út þetta tímabilið.