31.01.11 - 21:55
Magnús Már Einarsson
Giovani dos Santos til Racing Santander á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Spænska félagið Racing Santander hefur fengið Giovani dos Santos á láni frá Tottenham út tímabilið.
Þessi 21 árs gamli Mexíkói hefur einungis leikið tíu deildarleiki með Tottenham síðan hann kom til félagsins frá Barcelona árið 2008.
Dos Santos var inn og út úr byrjunarliði Barcelona tímabilið 2007/2008 en síðan þá hefur lítið verið að frétta af ferli hans.
Árið 2009 fór Dos Santos til Ipswich á láni og í fyrra var hann lánaður til Galatasaray í Tyrklandi.
Hann mun núna fá tækifæri til að láta ljós sitt skína í spænska boltanum á nýjan leik út þetta tímabil.