31.01.11 - 22:56
Magnús Már Einarsson
Andy Carroll til Liverpool (Staðfest) – Fær níuna

Andy Carroll er orðinn leikmaður Liverpool. Hér er hann með Kenny Dalglish knattspyrnustjóra eftir undirskriftina.

Mynd: Vefur Liverpool

Liverpool hefur gengið frá kaupunum á Andy Carroll framherja Newcastle en talið er að kaupverðið hljóði upp á 35 milljónir punda.
Carroll skrifaði undir fimm og hálfs árs samning við Liverpool eftir að hafa staðiðst læknisskoðun í kvöld.
Hann mun fá treyju númer níu hjá Liverpool og taka við henni af Fernando Torres sem er á leið til Chelsea.
Caroll lék sinn fyrsta leik með Newcastle árið 2008 og hefur síðan þá skotist upp á stjörnuhiminn.
Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur skorað ellefu mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur en hann lék sinn fyrsta landsleik með Englendingum á síðasta ári.
Carroll hefur verið frá keppni síðan í lok desember vegna meiðsla á læri og líklegt er að stuðningsmenn Liverpool verði að bíða í einhverjar vikur með að sjá hann leika sinn fyrsta leik með liðinu.