31.01.11 - 23:05
Magnús Már Einarsson
Eiður Smári Guðjohnsen í Fulham (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Fulham hefur staðfest komu Eiðs Smára Guðjohnsen til félagsins en hann kemur á láni frá Stoke út tímabilið.
,,Fótboltafélagið Fulham tilkynnir með ánægju að Eiður Smári Guðjohnsen er kominn á láni frá Stoke City út tímabilið,” sagði í yfirlýsingu á heimasíðu Fulham í kvöld.
Þetta þýðir að Eiður er að öllum líkindum búinn að spila sinn síðasta leik með Stoke því hann verður samningslaus í sumar og er þá frjáls ferða sinna.
Eiður Smári var nálægt því að ganga til liðs við Fulham síðastliðið sumar en á endanum fór hann til Stoke.
Þar hefur hann ekki verið inni í myndinni en þessi 32 ára gamli leikmaður hefur einungis leikið fimm leiki með Stoke og sá síðasti kom gegn West Ham í október.
Möguleiki er á að Eiður leiki sinn fyrsta leik með Fulham gegn Newcastle á miðvikudagskvöld.