31.01.11 - 23:28
Magnús Már Einarsson
Fernando Torres til Chelsea (Staðfest)

Fernando Torres verður í bláu næstu árin.

Mynd: Vefur Chelsea

Chelsea hefur gengið frá kaupum á Fernando Torres framherja Liverpool.
Liverpool staðfesti þetta í yfirlýsingu sem félagið birti á vefsíðu sinni í kvöld.
Talið er að kaupverðið hljóði upp á 50 milljónir punda en Spánverjinn ku hafa gert samning til ársins 2016.
Torres, sem er 26 ára, kom til Liverpool frá Atletico Madrid árið 2007 en hann hefur raðað inn mörkunum á Anfield undanfarin ár.
Í vetur hefur Torres reyndar ekki verið í sínu besta standi en hann hefur skorað sjö mörk í ensku úrvalsdeildinni það sem af er á þessu tímabili.
Chelsea mætir Sunderland í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld en liðið tekur síðan á móti Liverpool næstkomandi sunnudag og þar gæti Torres mætt sínum gömlu félögum.