Fotbolti.net
31.01.11 - 23:33
Magnús Már Einarsson

David Luiz til Chelsea (Staðfest)

David Luiz til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur keypt brasilíska varnarmanninn David Luiz frá Benfica í Portúgal.
Kaupverðið hljóðar upp á 21,3 milljónir punda auk þess sem Benfica serbneska miðjumanninn Nemanja Matic í skiptum.

Chelsea hefur verið lengi á eftir Luiz og um helgina leit út fyrir að ekkert yrði af kaupunum.

Chelsea náði hins vegar að klára samninga rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði í kvöld.

Þetta þýðir að Chelsea eyddi yfir 70 milljónum punda í leikmenn í dag því Fernando Torres kom einnig til félagsins frá Liverpool á 50 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.