Fotbolti.net
31.01.11 - 23:42
Magnús Már Einarsson

El Hadji Diouf til Rangers (Staðfest)

El Hadji Diouf til Rangers (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Skoska félagið Rangers hefur fengið El Hadji Diouf á láni frá Blackburn út þetta tímabil.
Þessi skapgóði Senegali á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við Blackburn en félagið var til í að leyfa honum að fara til Rangers.

Ljóst er að Diouf mun fá afar óblíðar móttökur hjá erkifjendum Rangers í Celtic.

Diouf hrækti á stuðningsmann Celtic í leik með Liverpool árið 2003 og ljóst er að menn þar á bæ hafa ekki glæmt því atviki.

Diouf gæti fengið að finna fyrir því strax um næstu helgi þegar Rangers og Celtic eigast við í skoska bikarnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.