31.03.11 - 07:04
Magnús Már Einarsson
Dan Howell í KA (Staðfest)

Dan Howell og Gunnlaugur Jónsson.

Mynd: KA

Dan Howell og Gunnlaugur Jónsson.

Mynd: KA
Bandaríkjamaðurinn Dan Howell, sem verið hefur á reynslu hjá KA síðustu vikur, gerði í gær samning við félagið sem gildir út komandi keppnistímabil.
Howell, sem er framherji, hefur undanfarnar vikur æft með KA og komið inn á í tveimur leikjum liðsins í Lengjubikarnum, í útileikjunum við Selfoss og Keflavík.
Hann mun koma við sögu í grannaslag Þórs og KA í Lengjubikarnum í Boganum klukkan 21:15 í kvöld.
Í fyrra lék Howell með Gróttu þar sem hann skoraði fimm mörk í 21 leik í fyrstu deildinni og eitt mark í tveimur leikjum í VISA-bikarnum.
,,Ég er hæstánægður með að hafa fengið Dan í okkar raðir. Hann hefur sýnt fína takta á æfingum hjá okkur og ég er þess fullviss að hann á eftir að nýtast okkur vel í sumar,\" sagði Gunnlaugur Jónsson, þjálfari KA.