Fotbolti.net
31.03.11 - 16:23
Magnús Már Einarsson

Daníel Hjaltason og Kristinn Aron til Modum (Staðfest)

Daníel (til vinstri) og Kristinn Aron (til hægri).

Daníel (til vinstri) og Kristinn Aron (til hægri).

Canon

Mynd: Fótbolti.net

Daníel Hjaltason og Kristinn Aron Hjartarson hafa skrifað undir tveggja ára samning hjá norska félaginu Modum.
Daníel hefur lengst af á sínum ferli leikið með Víkingi en í fyrra skoraði hann þrjú mörk í þrettán leikjum þegar liðið komst upp úr fyrstu deildinni.

Þessi 32 ára gamli leikmaður spilaði einnig með Val árið 2007 og 2008.

Kristinn Aron lék i fyrra með Tindastóli í þriðju deildinni þar sem hann skoraði sjö mörk í tíu leikjum þegar liðið fór upp um deild.

Kristinn hefur einnig leikið með Skallagrími og Kára á ferlinum sem og uppeldisfélagi sínu ÍA.

Modum FK leikur í þriðju deildinni í Noregi eða fjórðu efstu deild en liðið féll fyrir tveimur árum úr annarri deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.